miðvikudagur, nóvember 21, 2007

Útsýnisferð um Juba - På oppdagelsesreise i Juba






















Síðastliðinn sunnudag var víða farið í Juba. Náði að fá með mér 3 aðra til að fara í fjallgöngu á sunnudagsmorgninum. Fjallið er ekki mjög hátt en útsýnið er gott yfir bæinn Juba. Þar sem fjallið kom ekki til okkar eins og hjá Muhammed forðum gengum við til fjallsins og sú ferð rúman klukkutíma. Áður en við byrjuðum klifið, heyrðum við útundan okkur að það gætu verið jarðsprengjur frá því í stríðinu einhvers staðar á svæðinu. Við ákváðum að fara öllu með gát, engan langaði til að þurfa að fara í göngutúra í hjólastól í framtíðinni. Við sáum líka fram á að túrinn yrði ansi langur því að við áttum síðan eftir að ganga sömu vegalengd til baka. Því ákváðum við að fresta ferðinni á toppinn þangað til á laugardaginn næsta og þá með meiri upplýsingar um jarðsprengjusvæðin. En við komumst þó svo hátt að þessu sinni að við gátum notið útsýnisins. Þegar við komum svo heim að lokum höfðum við gengið 13 km á rúmum 3 tímum. Var orðin býsna grillaður á örmum og haus. Stórt laufblað sem ég fann, setti ég á skallan sem hlífði vel svo að ekki syði uppúr í brennheitri sólinni.

Ég rétt náði að bregða mér í sturtu áður en ferðinni var heitið í áttina að Níl. Til stóð að fara í bátsferð með 6 öðrum af norrænu kyni. Við sigldum um Níl í tvo tíma. Mikil frjósemi er við árbakkana og mikið fuglalíf að sjá. Sérstaklega var mikið af hegrum sjáanlegir og ýmsir skrautlegir fuglar. Þegar þessi sunnudagur var á enda var maður orðin öllu fróðari um svæðið.

Mér finnst eins og að vikan sé nýbyrjuð þótt komin sé fimmtudagur. Þótt maður vinni 12 tíma á dag, er tíminn ansi fljótur að líða. Starfsliðið sem er mér innan handar er áhugasamt og verkefnin eru flest í áætlun sem gerir lífið ljúfara.

Í dag förum Peter og ég í okkar fimmtudagsgöngu og könnum nýjar slóðir. Á laugardagsmorgun verður síðan fjallganga eins og áður er sagt. Margir af innfæddum starfsfélögum hafa óskað eftir að fá að slást í hópinn. Segi frá útkomu þeirrar ferðar eftir helgi.


Siste søndag gikk ut på å utforske Juba. Fikk med meg 3 andre til å ta en tur på fjellet på søndagsmorgenen. Fjellet er ikke så veldig høyt men gir en god utsikt over Juba. Vi valgte å gå til fjellet siden det ikke kom til oss som i Muhammeds dager og tok turen dit drøy en time. Vi fikk snusen av det fantes muligens miner i området og bestemte oss for å være forsiktige. Ingen hadde lyst å ta turer i rullestol i fremtiden så vi utsatte turen til toppen til neste helg og etter å fått litt mer informasjon om mineleggingen. Men så høyt greide vi å komme oss at vi fikk god utsikt over byen. Da vi var hjemme igjen hadde vi gått 13 km på 3 timer. Ble ganske grillet på turen i den sterke solen. Fant et løvblad som jeg brukte som beskyttelse på skallen for ikke å koke helt over.

Jeg greide såvidt å dusje før jeg tok veien til Nilen for å dra på båttur. Vi var 7 stykker som utforsket Nil og området i 2 timer. Det var mye grønt og mye av forskjellige fugler å utforske. Da denne søndagen tok slutt hadde jeg sett og opplevd mye nytt.

Det føles at uken har akkurat started men nærmer seg slutt likevel. Tiden går fort og selv om man jobber 12 timer om dagen går dagene som et lyn. Mine kolleger på finans viser stor innsats og vi er i rute med det meste.

I morgen er det fredag og da blir det enda en spasetur sammen med Peter fra Kenya. På lørdag blir det som tidligere sagt, fjelltur. Det ser ut som det blir mange som vil henge seg på. Men det får dere vite mer om etter neste helg.

Engin ummæli: