mánudagur, janúar 16, 2006

"Still alive and well"

Það er orðið svolítið síðan að ég hef látið heyra frá mér. Er búinn að vera eina viku í vinnu núna og ekki lítið að setja sig inn í. Forveri minn fer eftir eina viku eða 22. janúar og þá byrjar alvaran. Þótt Nyala sé 150 þúsund manna bær, er engin leið að sjá neitt sem minnir á Reykjavík. Hér eru aðeins 8 til 10 aðalgöturnar malbikaðar, hliðargötur allar bara sandur. Mikið drasla af götunum, engar vatnsleiðslur, kranavatn er ódrykkjarhæft og rykið er mikið. Hitinn var fyrstu dagana um 35 gráður að degi til en ca 21 gráða á næturna. Síðustu tvo dagana skall á hret og hitinn hefur farið undir 30 gráður að degi til og 16 gráður síðustu tvær nætur.

Hér starfa ca 40 "alþjóðlegir" starfsmenn, fagfólk frá 15 mismunandi löndum, og 300 innfæddir, 200 hér í Nyala og ca 100 á okkar nágranna svæðum, undir okkar umsjá.

Maturinn er góður, mikið soðin matur, kjöt, kjúklingur og grænmeti. Allt drykkjarvatn er á flöskum sem okkur skaffað, bæði á vinnustað og þar sem við búum.

Ég er ekki enn búinn að fá varanlegan íverustað, en fæ hann í lok vikunar þegar forveri minn yfirgefur pleisið. Við förum reyndar saman til Khartoum þar sem ég byrja á Navisionuppsetningu fyrir Nyala og verð þar alla næstu viku.

Semsagt, ákaflega spennandi framundan. Ekkert hefur beinlínis komið á óvart, var að mestu búinn að sjá fyrir mér þessa mynd. Það sem kom mest á óvart var kanski allt ruslið á götunum.

Sudanir eru glaðlegir, kurteisir og heilsa alltaf. Hef enn ekki séð eina einustu konu með blæju fyrir andlitinu. Það tilheyrir greinilega ekki menningunni hér.

Læt þetta duga í bili, læt heyra frá mér áður en ég fer til Khartoum þann 22. janúar.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll pabbi minn. Gott að fá fréttir af þér. Var að spjalla við mömmu á msn. Elísa Rún telur niður á puttunum dagana þangað til amma kemur, voða spennt. Hlynur Örn er farinn að skríða "venjulega" og stóð upp í rúminu sínu í fyrsta skipti í gærmorgun. Allt að gerast. Kveðja úr Geislanum, Björkin

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra frá þér aftur, karlinn minn :) Þú hlýtur að vera þreyttur af að taka inn allt þetta nýja...svo ólíkt því sem við eigum að venjast hér í Norge...kom að vísu "hret" hjá okkur líka...byrjaði að snjóa og fór niður fyrir frostmark í dag...!!! Dagarnir frekar dimmir og kaldir...og sumarið eitthvað svo óórafjarri...!!!
Gangi þér vel...kær kveðja :)
Gígja

Nafnlaus sagði...

Hei der nede i varmen, ser ut som om du koser deg ja, selv vi som ikke er så gode på Islandsk gjetter oss til at livet er helt ok hos deg.