miðvikudagur, janúar 25, 2006

Vinnudagar i Khartoum


Er staddur á skrifstofu NCA (Norwegian Church Aid) hér í Khartoum í tengslum við uppsetningu Navision í Nýala. Tók formlega við embættinu sem Finance Manager í dag þar sem Stáli, forveri minn flýgur heim í kvöld. Höfum notað síðustu dagana til að fara í gegn um ýmsa hluti. Kem ekki alveg að hreinu borði, verð í því að hreinsa svolítið upp frá því í fyrra. Stáli hefur verið duglegur að setja upp ýmsar vinnureglur og línur að vinna eftir. Öll skráning bókhalds og skýrslugerð hefur hins vegar farið fram í Khartoum hingað til og fjarlægðin frá Nyala verið honum fótakefli. Ég kem hins vegar til með að starfa við gjörbreyttar aðstæður, með allan pakkann í mínum höndum.

Hér, beint á móti er sendiráð Niger. Þar fyrir utan höfðu ýmsir tónlistar menn með trumbur og furðuleg blásturshljóðfæri komið sér fyrir og spilað, þar sem von var á Niger forsetanum í heimsókn. Hann er hér i tengslum við AU fundinn sem er haldinn hér í khartoum. Langaði mikið til að filma atburðin en var ráðið sterkleg frá því vegna öryggisvarða sem voru þar í hópum. Gæti átt á hættu að verða lokaður inni með það sama.

En sem sagt, tveir dagar með Navision workshop og síðan til baka til Nyala á laugardag. Það styttist ótrúlega í 6. apríl. Vona að ég nái að gera allt sem ég þarf að gera. Bildet er av begge Finance Man., avtroppende og den påtroppende.

På besøk i Khartoum i forbindelse med implementeringen av Navision i Nyala. Formell handover fra Ståle i dag siden han reiser hjem til Norge i kveld, onsdag. Jeg reiser til bake til Nyala på lørdag.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þið eruð flottir .... og duglegir piltar. Hér í Grafarholti er allt einsog það á að vera; framkvæmdir á neðri hæð þokast áfram meðan sá stysti dafnar með hverjum deginum. Veður umhleypingasamt, yfir frostmarki í dag; Þorri genginn í garð ...... má bjóða þér súrsaðan lundabagga með kaffinu?

Gudmundur Bardarson sagði...

Tek gjarnan allan pakkann með súrsuðum púngum, hákarli og hinu

Nafnlaus sagði...

Tékka á blogginu oft á dag og drekk í mig nýjar færslur. Gott að heyra frá þér. Þín Unnur Björk

Nafnlaus sagði...

...ég ætla að biðja þig að vera ekkert að filma...!!!

Gudmundur Bardarson sagði...

Ég skal passa mig á löggunni

Nafnlaus sagði...

Sæll Guðmundur. Við sitjum hér öll og lesum skemmtilegar frásagnir frá þér. Gaman að sjá hvað þú ert að gera. Skemmtu þér vel úti. KBD: "Njóttu þér vel í útlöndum, bæ, bæ".

Nafnlaus sagði...

Búin að baka tvær franskar súkkulaðikökur í morgun auk þess að gefa tveim missvöngum grislingum að borða. 10 ára afmælisveisla elsta barnabarnsins síðar í dag.
Góða ferð til Nyala. Þú ert væntanlega á leiðinni þessa stundina...

Nafnlaus sagði...

Jæja pabbi... Er ekki kominn tími á nýja bloggfærslu?...