þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Allt að færast í eðlilegt horf

John og ég erum einir í húsinu. Þrjú eru farin til Nyala. Starfsemin er að komast í gang aftur í Darfur. Ég fer ekki fyrr en á sunnudag, 5. mars. Er á fullu að reka endahnútinn á ársuppgjörið með fjármáladeildinni hér í Khartoum. Áður en ég held til Nyala, verð ég skólaður í Navision og verð með í að setja upp skraddarasauminn á kerfinu fyrir okkur. Þegar ég kem til Nyala, verður hafist handa við að setja kerfið í gang og skrá allt sem komið er af gögnum.

Mér hefur borist liðsauki frá fjármáladeildinni hér í Khartoum, reyndur bókhaldari frá Noregi sem er tilbúinn að framlengja samning sinn í 6 mánuði og flytja til Nyala. Þar með erum við þrjú "International Staff" og fjórir "Local". Okkar viðamesta áskorun verður að þjálfa upp heimafólkið í nýjum kerfum og vinnubrögðum. Einn af mínum starfsmönnum af heimafólki er mjög áhugasamur og kemur til með að vera einn af máttarstólpunum í teaminu. En ólíkur hugsunarháttur og vinnubrögð hafa sett þjálfun heimamanna takmörk. Það er því mikil þolinmæðisvinna að ná gagnkvæmum skilningi á hugsunarhætti þessara mismunandi menningarheima. Þegar ég missi þessar tvær "support funksjónir" í haust, er eins gott að heimafólkið hafi notað tíman vel og sé tilbúið að taka við ábyrgðinni. Ég er einu sinni þannig að ég hef alltaf trú á fólki, þar til annað kemur í ljós. Reyni að hlusta sem minnst á efasemdaraddirnar en geri mér samt grein fyrir áskoruninni. Reyni að setja mig í spor þeirra innfæddu og horfa á heiminn frá þeirra sjónarhóli og jafnframt snúa mínum spegli inn og endurskoða mínar eigin skoðanir og hugmyndir, "huglægu líkön" sem maður hefur búið sér til af raunveruleikanum. Á meðan allir halda fast í sinn raunveruleika, sem sinn eina rétta, komumst við ekki langt.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef einhver getur það þá ert það þú! :-D

Nafnlaus sagði...

Sætt og blessaður.
fylgist með þér af klakanum.
Sit sjálfur inn á bókhaldsskrifstofu á Akureyri. Réði mig sem verktaka til vorsins. verð á lausu þá (:-)
kveðja Gunnar Páll

Nafnlaus sagði...

Gleymdi að nefna það að ég vil heldur norskuna en enskuna í pistlunum ef íslenskan dugir ekki fyrir norsku vinina þína.
gpje