þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Ekkert útstáelse í kvöld
Ætla heim eftir vinnu og ná úr mér hóstanum. Þessar loftkælingar gera manni ekki gott þegar maður er kvefaður og með hósta. Skruppum á tyrkneskan í gærkvöldi, léttur kvöldverður með mixed salad og brauð með. Annars viðburðalítið þessa tvo síðustu daga. Erum að byrja að planleggja föstudaginn, frídaginn okkar. Engin ákvörðun tekin enn. Kanski erum við búin að sjá allt. Læt vita.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Trúi nú varla að þið séuð búin að sjá allt markvert í höfuðborginni, he, he. Farið varlega alla vega og felið norska fánann vandlega. Engin ný ákvörðun um að snúa tilbaka til Darfur? Já og á morgun eru 6 vikur þar til við sjáumst!
Jæja, lífið að komast í fastar skorður í Geislanum. Hlynur svaf eins og steinn til kl. 8 en þá þurfti ég að vekja hann! Elísa Rún svaf í "pabba holu", vært að vanda. Allir mættir tímanlega í vinnu og dagvistun í morgun. Elísa taldi á fingrunum: 4 dagar þangað til pabbi kemur heim. ;-)
I quote: "Skruppum á tyrkneskan í gærkvöldi, léttur kvöldverður með mixed salad og brauð með." Man.... ætlastu til að ég trúi þessu :p ..léttur ?? ó jamm, jæja kannski en ég er samt hálf efins um að léttleikinn skili sér :) Vona samt að þið sveltið ekki þarna :)
Ég var í viku fyrir vestan og varð oft hugsað til "Gumma litla" þegar Árni hlóð kræsingunum á borð. Borðbænin var alltaf sú sama. Vér þökkum almættinu fyrir að Gummi skuli vera víðsfjarri þessa stundina. Auðvita með velferð þína í huga elsku kallinn minn :) .. Engan vildi ég frekar hafa hér einhverstaðar nálægan en þig gamli minn :) Komdu heim sem fyrst og ég splæsi í eina með öllu :)
Skrifa ummæli