


Hér er allt á fullu, eins og í mauraþúfu. Það er svei mer gott að hafa fengið reynslu í slökkvistarfi á fyrrverandi vinnustað. Sú reynsla kemur sér vel núna. En ég verð að segja, mikið skelfing er gaman að þessu. Hér eru margir menningarheimar samankomnir, sem reyna að búa, saman, vinna saman og eiga frítíma saman. Það gengur ekki alltaf vel, sumum er það erfiðara en öðrum. Við sátum lengi í gærkvöldu og vorum að reyna að skilgreina Sudanska kúlturinn, einkum hér í Nýala, til að auka skilning okkar á honum og reyna horfa á hlutina út frá þeirra sjónarhóli. Okkur fannst við vera vitrari eftir á. Ég fer yfir þá sálma með ykkur síðar. Það er svo mikilvægt að horfa ekki bara á hlutina út frá sjálfum sér. Ef maður nær að færa sig útfyrir sjálfan sig og skipta um sjónarhól, hætta sumir hlutir að koma manni svo skelfilega á óvart.
Við byrjum á fullu um helgina að skella upp Navision kerfinu. Það verður spennandi að vinna við það og vera með í þeirri uppbyggingu sem á sér stað hér.
Læt þetta nægja í bili og læt nokkrar myndir fylgja, teknar í vistarverum mínum. Við erum 4 sem búum saman eins og er, Wilfred, Vladko, Alfonsi og ég.
3 ummæli:
Það verður gaman að heyra meira um þessa mismunandi menningarheima. Spennandi. Hvaða þjóðerni hafa þau sem búa með þér?
Hei der nede i varmen,det ser jo ut som om du stortrives og koser deg.Håper det går bra med deg og at du slipper unna det "lokale" bråket der nede.Jeg begynner også å bli"varm i trøya" i ny jobb. Skal åpne en butikk i feb, en i mars og en i mai.
Peter
Hér eru þjóðernin sem vinna saman þessa stundina.
Danmörk
England
Ísland
Írland
Kamerun
Kenya
Macedonia
Malawi
Nigeria
Noregur
Ruwanda
Sudan
Swiss
Uganda
Zimbabwe
Skrifa ummæli