

Það er í raun allt gott um það að segja að ég skuli ekki komast fyrr en um miðja næstu viku. Kann orðið ágætlega við mig í Khartoum, búinn að skoða mikið og er enn að. Á miðvikudaginn fórum við að skoða þjóðminjasafnið, sem inniheldur ýmsar sögulegar minjar, allt frá 250 þúsund árum fyrir Krist. Hef víða séð yfirgripsmeiri söfn en það var vel þess virði að skoða það. Lýsir menningunni eins og hún er og var. Í gærkvöldi, sem var fimmtudagskvöld, eins og föstudagskvöld heima með frídag í dag. Wilfred, sem er frá Uganda, flutti til okkar í gær og ég byrjaði kvöldið á því að fylgja honum heim með dótið sitt. Það var hringt í mig um áttaleytið í gærkvöldi, þar sem gengið mitt var komið á kondidoriið á hringtorginu. Hafði mig af stað til að vera ekki félagsskítur, húkkaði leigubíl og leiðbeindi honum á áfangastað með Gé Pé essinu, en punktinn var ég búinn að merkja inn á ásamt aðalgötur Khartoum. Svaf meira eða minna til 9 í morgun, fékk mér morgunverð, fór að downlóta myndum, lesa póstinn minn og lesa. Enginn póstur að heiman í morgun. Það á að fara seinna í dag og horfa á dervisana dansa. Hef séð það áður en reikna með að ég fari með. Klukkan er 12:30 núna og við tökum það rólega fram undir þrjú. Vilfred situr við hliðina á mér og er að pikka á tölvuna. Christin er að fá sér síðbúinn morgunverð. Er sjálfur með þrálátann hósta og reyni að halda mig inni framan af í dag. Það er hvasst og mikið ryk í lofti.
3 ummæli:
Gaman að þessum pistli. Alltaf gaman að fá innsýn í þitt daglega líf þarna í "Langtbortistan" eins og stóð í norsku Andrésarlöðunum í gamla daga. Ég er heima í dag með lasinn Hlyn. Hann var með ansi háan hita í morgun og fiktar í öðru eyranu þannig að ég ætla að láta kíkja á hann seinnipartinn. Að öðru leyti er hann hress, var að sofna núna og svei mér þá, ég er að hugsa um að leggja mig líka. ;-) Kveðja úr Geislanum.
Sæll Guðmundur...þú verður nú að taka því smá rólega ef þú ert með hósta...segi ég héðan frá Noregi þar sem allir eru meira eða minna veikir...með hita og hósta.
Var að tala við Hugrúnu sem er netsambandslaus...og menn (telenor!!!) komnir í helgarfrí og geta því ekki lagað þetta fyrir hana fyrr en á mánudag...!!!
Strákarnir farnir í vetrarfrí til Íslands og í staðinn kom mamma í heimsókn og við stelpurnar ætlum að kósa okkur um helgina :)
Hér er ótrúlega mikill snjór...ekki komið svo mikill snjór í yfir 40 ár!
Kær kveðja
Gigja
Sæll og blessadur!
Hvorforf kan du ikke skrive litt mer moderne nordisk??
Det er andre enn den lille gruppa på Island som følger med i livet ditt vet du. Og det er ikke alle her i verden som har blitt så forelsket i Island at de lærer seg språket vet du...
Kanskje det kunne gått vel så bra på engelsk, så slipper du å skrive to brev hver dag... ??
klem fra May-Lill
Skrifa ummæli