sunnudagur, febrúar 05, 2006

Hópur af alþjóðlegu starfsfólki sent til Khartoum...

.. og ég er meðal þeirra. Af öryggisástæðum verðum við send til Khartoum þar sem ástandið er talið tryggara þar en hér í Darfur. Hef í raun fulla möguleika á að gera mikið af minni vinnu þar eins og hér í Nyala. Tökum tækjabúnaðinn með okkur. Við verðum næstu 7 daga þar eða fram á sunnudag næsta. Sem sagt það er nokkur upplausn í vorum búðum eins og víða annars staðar. Ástandið virðist vera ansi reikult og erfitt að sjá fyrir hvaða stefnu það getur tekið. Þess vegna eru ekki teknir neinir sjénsar. Við vorum selflutt á milli skrifstofu og heimilis í dag.

Fljúgum með vél á vegum SÞ. Það eru allt að 20 manns sem fara af svæðinu. Læt heyra frá mér á næstu dögum. Nettenging getur orðið stopul næstu daga en ég skrifa línur þegar ég kemst í tengingu. Er einnig með módem í tölvunni sem ég nota reyndar þessa stundina heima, þannig að ef ég finn símalínu get ég tengt mig.

Eru menningarárekstrarnir að færast lengra upp á yfirborðið? Efast stórlega um að þetta verði það síðasta sem kemur upp. Margir álíta að atburðir síðustu daga hafi verið nauðsynlegir til að skapa umræðu, umræðu sem getur komið ólíku menningarheimum til góða þegar til lengri tíma er litið.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já það er ýmislegt sem hefur gengið á og þú hefur upplifað á þínum fyrsta mánuði í starfinu! Sjáumst eftir 2 mánuði :):)

Gudmundur Bardarson sagði...

Hlakka til eftir tvo mánuði. Vona eiginlega að það verði ekki fyrr. Það er nú einu sinn þannig með blessað skottið, maður vill sem minnst vita af því á milli fótanna.

Nafnlaus sagði...

Karlinn minn...sé þig nú ekki fyrir mér með skottið á milli fótanna ;)
Gott að vita að það er passað vel upp á ykkur og gerðar nauðsynlegar öryggisráðstafanir.
Það er auðvitað ekki talað um annað (og OL auðvitað) hér í Noregi. Í sjónvarpi...útvarpi...blöðum...og við hádegisborðið í vinnunni...allir hafa miklar og ólíkar skoðanir. Nafni þinn er hálf hræddur við þetta allt saman....og segist t.d. ekki vilja fara niður í miðbæ!
Kær kveðja Gigja
og Nonni biður að heilsa
p.s. Þú hefðir þurft að hafa íslenska fánann í fartesikinu...viltu að ég sendi þér minn!!!? ;)