fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Skrifstofum NCA lokað i Darfur

Ástandið í Darfur batnar ekki. Nú kemur restin af starfsliðinu til Khartoum í dag, fimmtudag. Þar með liggur öll starfsemi niðri. Þetta eru óstaðfestar fréttir. Mæti á fund kl. 09:30 þar sem formlega verður greint frá ástandinu. Þetta þýðir að vera mín í Khartoum á eftir að lengjast og vera mín í Súdan gæti styst. Þetta á eftir að koma í ljós á næstu dögum. Ástandið sveiflast frá degi til dags, það getur versnað enn meir og það getur líka færst í eðlilegt horf aftur. Eins og við öll vitum lifum við í dynamiskri veröld. Það eru öll sólarmerki þess að mannkynið er að ganga í gegn um miklar breytingar, sem kanski geta orðið örari enn áður haldið. Við látum ekki þessa vaxtarverki breytinganna slá okkur út af laginu, horfum heldur til lengri tíma og sjáum fyrir okkur veröld friðar og einingu. Við þekkjum það öll að skóli lífsins getur verið erfiður en það er notaleg tilfinning þegar maður getur horft til baka þegar áföngum er náð.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Pabbi, ég dáist að þér og þínu jákvæða viðhorfi til lífsins.
Elísa Rún rifjaði upp í morgun að þú hefðir hjálpað henni að teikna upp fótinn hennar og klippa hann út þegar þú varst hér síðast. Þessi umræddi pappírsfótur er notaður fyrir bókamerki í bókinni um Línu Langsokk sem er lesið úr á hverju kvöldi.