mánudagur, febrúar 13, 2006

Tilbúinn að fara til Nýala aftur eftir Khartoum dvöl

Það er búið að skoða mikið. Skelltum okkur út í eyðimörkina og litum á úrvalið af kameldýrum. Það var um mikið að velja. Verðið frá einni og hálfri milljón SDD (sudanskir dínarar). Það er um það bil 40 þúsund íslenskar krónur. Vorum í of litlum bíl, 6 saman. Þótt að maður komi úlfalda í gegn um nálarauga, er miklu erfiðara að fá kameldýr inn í bitaboks (súkku). Skelltum okkur svo á stærsta markað Sudan, í Omdurman, sem er Hafnarfjörður Khartoumborgar. Stoppuðum reyndar stutt við, gapandi yfir ósköpunum og ákváðum að þangað skyldum við aftur. Það var orðið dimmt og við skelltum okkur á kaffibarinn sem er hringtorgi í miðri Khartoum, með konditori, ísbar og tilheyrandi, sá sami og við fórum á eftir Nílarferðina. Í gær var langur vinnudagur og slappað af á hótelinu á eftir.

Í dag, fórum við, sami hópurinn, ásamt bílstjóranum okkar, og skoðuðum listigarð Khartoumborgar. Hann er frá nýlendutímunum, en haldið nokkuð vel við. Var bísna þurr en maður verður að taka með í reikninginn að það er nánast hávetur, ekki nema 35 stiga hiti á daginn. Hlakka til að sjá sama garðinn í júlí, eða þegar rigningatíminn byrjar. Eftir garðinn reyndum við þjóðminjasafnið, en þar er lok lok og læs á mánudögum. Reynum annan dag. Fórum að lokum á veitingastað sem Shalah mælti með (Bílstjórinn okkar sem hefur búið í Noregi og á reyndar norska konu og er með Sudanskt háskólapróf í lífefnafræði). Maturinn var frábær. Ég fékk mér gufusteikt lambakjöt, með hrísgrjónum og helling af meðlæti. Þetta var lambahryggur, ofnsteiktur en kryddaður á Súdanska vísu. Á borðum var viðargrillaður kjúlli, Shish kebab ofl. Næsti maður í heimsókn verður boðinn þangað, ekki spurning. Það er eins og Jóhann kommenteraði, það er ekki hægt að sjá að það sé hungursneyð hér. Vona að ég geti farið að draga úr ofeldinu. Er á leiðinni til baka til Nyala á laugardaginn. Þar með verður hlé á lúksuslífinu. Heyrumst

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þið eruð að verða heimavön í höfuðborginni heyri ég. Spennandi að heyra af ferðum ykkar. Níl er svo stór og breið, er ekki hægt að nota hana til að vökva listigarðinn? Hér í Norge er vetrarríki, snjó hefur hlaðið niður; mér finnst skrítið að koma heim í "kyrrðina" ..... allt fannhvítt og hrímuð tré þegar ég flaug yfir í morgun.

Nafnlaus sagði...

Kíki reglulega á fréttir af þér, Guðmundur, en að segja frá mér datt mér ekki í hug !!! Finnst þú fara ansi víða um miðað við 'ástandið'.. en það eru góðar fréttir að ykkur sé óhætt að ferðast. Hér á Ak er blindbylur og fylgdi ég krökkunum í skólann í morgun. Daddi og Tinna eru á Ítalíu í sól og blýðu á skíðum og verða í rúma viku. TD er að keppa á alþjóðl. leikum sem nefnast Topolino og fór út í boði Andrésar Andar nefndarinnar. Góðar kveðjur.