föstudagur, febrúar 10, 2006
Túristi í einn dag
Það er ýmislegt hægt að gera í Khartoum sem ferðamaður. Skelltum okkur 6 norðmenn og íslendingur yfir á eyju sem er á miðri Níl, löbbuðum þar um í tvo tíma og skoðuðum mannlífið. Fórum síðan á Grand Hotel Villa og fengum okkur lunch. Eftir það fór hópurinn, sem hafði stækkað um tvo, í bátsferð um Níl. Það var virkileg upplifun. Áin er mikilvæg áveita til ræktunar í annars skraufa þurru landi. Fórum síðan á kaffihús með konditori og íssölu og fengum okkur hressingu. Deginum lauk síðan með tveim umferðum í keiluspili (bowling), skipt í tvö lið. Í fyrstu umferð var ég efstur í mínu liði, svo að þið getið ímyndað ykkur hver hæfni hópsins annars er. En gaman var það engu að síður. Skelli inn nokkrum myndum á morgun. Okkur var annars ráðlagt að taka ekki myndir vegna þess að búið var að fá nasaþef af yfirvofandi mótmælagöngu. Ég hef hins vegar sjaldan tekið eins mikið af myndum á einum degi og í dag. Það urðu engin mótmæli og það hvíldi friðsemd yfir allri borginni. Fékk síðar að vita frá mér fróðari manni að borgarbúar nenni ekki að taka þátt í slíkri mótmæla vitleysu sem átt hefur sér stað víða annars staðar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Afi veistu hvað? Ég heiti Hlynur Kári! Ég er er mjög sáttur við nafnið og restin af fjölskyldunni finnst það alveg þrusu flott. Hlyns nafnið er skáskot á Hlíns nafn stóru systur og Kára nafnið passaði bara svo vel við mig enda gnauðuðu vindar hér fyrir utan á meðan ég var skírður, fjölskyldan mín stóð í kring um háborðið og fylgdist með. Amma Hugrún hélt á mér undir skírn og var voða montin. Ég var fyrst svolítið argur en lognaði svo út af eftir að ég fékk vígða vatnið á höfuðið. Það var veisla á eftir og ég saknaði þín, en ég skal senda þér myndir alla leið til Súdan, elsku afi minn. Kær kveðja, Hlynur Kári
Skrifa ummæli