laugardagur, mars 04, 2006

Bullandi vinna og heimferð til Nyala á morgun

Vann allan föstudaginn við að gera bókhaldskerfið klárt. Auðvitað böggar í kerfinu með tilheyrandi villumeldingum. Það gengur ekkert þrautalaust en það gengur fyrir rest. Spjótin beinast út öllum áttum núna.
Fer heim til Nyala í fyrramálið, vakna kl. 04, eins óguðlegum tíma og flug frá Íslandi til Oslo. Það verður ekki rólegt í kring um mig næstu vikurnar. Það verður passlegt að taka sér þrjár vikur í byrjun apríl, í Noregi og á Íslandi.
Það ríkir mikið sambandsleysi í Nýala við umheiminn, rafpósturinn virkar ekki dögum saman og ekki heldur símarnir. Vonandi stendur það til bóta. Segi þetta svo að þið látið ykkur ekki bregða þótt dagar geti liðið á milli tilkynningarskyldna frá mér. Lifið heil

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góða ferð á morgun! Væntanlega aðeins örfáir tímar þangað til þú ferð á stjá. Við Örn eru að útbúa kjúklingasúpu og ostaköku fyrir brunch á morgun. Langar þig í smakk?... Þú ert velkominn í afganga. ;-)
Góða nótt!