
Hvað er nú það? Er ekki búin að fá fullkomið svar við því ennþá. En hann var einhverskonar dýrlingur. En gaman var það, fullt af fólki frá öðrum stofnunum var boðið í gærkvöldi, föstudagskvöld, kl. 20. Það var búinn til írskur pottréttur með kjöti af nýslátruðu lambi. Við söfnuðum saman góðu úrvali af tónlist. Allar veislur hér í Nyala lýkur kl 23 að kvöldi. Vegna útgöngubannsins verða allir að skila sér heim fyrir þann tíma.
Flutti inn í nýja skrifstofu á fimmtudaginn með allt staffið með mér. Fékk sjálfur einkaherbergi. Fékk smá einkenni af víðáttu kompleksum til að byrja með enda herbergið töluvert stærra en kústaskápurinn sem ég flutti úr. Slík einkenni ganga fljótt yfir og maður reynir að njóta betri vinnuaðstöðu.
Er kominn með WEB cameru af góðum gæðum, þannig að ef einhver hefur áhuga á að sjá mitt fagra andlit, þá er það hægt núna. Var að setja hana upp. Einnig kominn með góð heyrnartól með góðum hljóðnema.
Það er eiginlega extra frídagur í dag. Leyfði mér að slaka á til kl 11 og rölti síðan í vinnuna. Hef notað daginn í spjall, hreinsa upp af skrifborðinu og prófa nýja búnaðinn minn.
Fer heim klukkan 16 og fæ mér góðan göngutúr með Wilfred, sem er frá Uganda. Fleiri hafa sýnt áhuga þannig að við gætum orðið fleiri.
Kem til Noregs að kvöldi 6. april ef allt gengur samkvæmt áætlun. Gæti dregist um einn til tvo daga, maður er undir það búinn að yfirvöld sleppi manni ekki átakalaust út. En hvað um það, fer tilbaka miðvikudaginn 26. apríl frá Gardermoen til Khartoum. Verð á Íslandi í 5-6 daga frá 19. apríl. Væri gaman að hittast ef tími finnst. Heyrumst
1 ummæli:
Kæri mágur, fylgist af andakt með þínu ævintýralega lífi. Góður dagur að velja til að koma til Íslands, sumardagurinn fyrsti, 20. apríl. Hlakka til að sjá þig þá, þó ég þykist vita að afi kallinn verði stærsta hlutverkið þitt í þessari heimsókn...
Miklar hjartanskveðjur
Lovísa
Skrifa ummæli