Eina ferðina enn hefur verið lokað fyrir öll samskipti. Uppreisnarmenn sáust í bænum fyrrihluta vikunnar þannig að hermenn voru um allt, stoppuðu bíla og rannsökuðu. Var vitni að einni slíkri skyndiskoðun þegar ég var í búðarferð, rétt fyrir útgöngubannið á fimmtudagskvöldið. Ég var ekki stoppaður, hefði sloppið í gegn þrátt fyrir það með allt ID með mér sem ég þarf að hafa. Vaknaði kl 12 á hádegi í gær föstudag, svefnþurfi eftir erfiða viku. Skrapp á skrifstofuna kl. 13 og var ekki búinn að vera þar svo ýkja lengi þegar mér var tilkynnt að það væri útgöngubann frá kl. 15 til kl 10 næsta morgun. Pakkaði saman tölvunni minni, skrapp aðeins í vinaheimsókn og flýtti mér svo heim áður en bannið gékk í gildi. Áttum eftir að versla í matinn, náðum að senda þann dekksta sem við fundum af vörðunum okkar og sendum hann út í búð. Það tókst allt vel og einn læknirinn sem var í heimsókn hjá okkur eldaði dýrindis Kenya máltíð. Klukkan 18 fengum við svo þær fréttir að útgöngubanninu hafi verið aflétt. Samtímis komst netsamband á og gemsarnir byrjuðu að virka.
Það var hörkuveisla hér á fimmtudagskvöldið í tilefni þess að einn mikilvægur starfsmaður okkar frá Sudan var að hætta, starfsmaður sem hefur verið tengiliður við mikilvægar sudanskar stofnanir. Það var mikið fjör með tilheyrandi dansi og löngum, löngum, löngum ræðum. Partíið endaði svo með hlaðborði á Sudanska vísu og disco. Þetta endaði um kl 22 um kvöldið og eins og ég nefndi hér að framan, rétt náði ég að versla morgunjógurtina mína eftir það.
Það er hálfgert hret, hitinn dúndrað niður í næstum 20 gráður á næturna, þannig að helv.... sturtan er ansi köld á morgnana. Á daginn hefur hitinn varla farið yfir 30 gráður. Ekki skrýtið að maður er með vasaklútinn á lofti. Við heyrumst.
laugardagur, mars 11, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Misjafnt hafast frændur að. Hér fer í mínus 15 gráður um nætur ..... eins gott að við erum ekki háð hitastigi umhverfisins þegar við förum í morgunsturtuna! Hef ekki séð þig online i dag svo kannski ertu aftur orðinn sambandslaus. Þrátt fyrir lognmollu veðurfarslýsinga á hún greinilega ekki við í daglega lífinu hjá þér! Er að þjóta í vinnuna. Sakna þín!
Sæll Guðmundur !!
Þetta er spennandi að fá að fylgjast með þér, það er engin lognmolla í kringum þig frekar en fyrri daginn, hér er allt við það sama ég er að byrja hringferð til að hafa eftirlit með slökkviliðunum á þriðjudaginn og það endist mér til í nóv. Láttu vita af þér ef þú verður á ferðinni
8935163 Kveðja Benni Bruni.
Kominn mánudagur enn og aftur. Hér skín sól á hvít fjöll og hvíta jörð og svei mér þá, skógarþrestir tóku syngjandi á móti mér þegar ég mætti í vinnuna í morgun. Stemning mjög svo ólík þeirri sem þú býrð við þessar vikurnar en gott að geta notið þeirra aðstæðna sem maður er í hverju sinni. Veit að þú gerir það. Hlakka til að sjá þig eftir rúman mánuð! :-)
Skrifa ummæli