fimmtudagur, maí 04, 2006

Kemur friðurinn með rigningunni?

Við bíðum spennt eftir því hvort friðarsamkomulagið í Sudan verði samþykkt og undirritað af öllum sem hlut eiga að máli. Gengi starfsemi okkar veltur mikið á því að ró færist yfir Darfur. Ég hef það á minni eigin tilfinningu að ef aðilar ná ekki saman núna, geti ástandið versnað til muna. Frétti að það hafi byrjað að rigna í Kubum í fyrradag. Það var þungbúið í Nyala undir kvöld, gola og raki í lofti. Rigningatíminn er framundan. Vona að friðurinn komi með rigningunni.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir allar myndirnar, hreint upplivelsi að gaumgæfa þær og reyna að setja sig inn í stemninguna hjá þér,

vonandi kemur friðurinn með rigningunni Guðmundur, við getum bara vonað.

:)
Lovísa