föstudagur, maí 19, 2006

Lífið hér hefur sinn hverdagsleika sem annars staðar



Það hefur verið mikið að gera undanfarið. Okkur miðar öllum vel áfram. Nýjar jákvæðar fréttir um fjárveitingar frá gefundum, hefur gefið okkur byr undir báða vængi. Darfur hefur verið mikið í fréttum undanfarið víða í hinum vestræna heimi. Það virðist alltaf þurfa að minna á vandamálin, þau eru svo víða að erfitt er að henda reiður á þau.
Er kominn með fulla áhöfn á minni skrifstofu, Philip skilaði sér á miðvikudag eftir 3 vikna frí. Fékk nýjan starfsmann til viðbótar í gær, þannig að við erum orðin 7 í fjármáladeildinni í Nyala. Við erum sterkur hópur, ólík, hvert okkar með sínar sterku hliðar, frábært og skapandi teymi með góða samvirkni. Við lögum veginn á meðan við göngum hann. Það tekur tíma að setja upp gott og skilvirkt kerfi.
Þrátt fyrir mikla vinnu, reynir maður alltaf að gefa forvitni sinni lausan tauminn og fara um og skoða lífið. Það er margt fólk sem maður sér og margir hafa litla sem enga möguleika á mannsæmandi lífi. Hér fæðast börn í fátækt og lífðið heldur áfram í fátækt. Er enn ekki búinn að átta mig á því af hverju þetta er svona víða um heim. Til þess þarf maður að kafa dýpra í söguna og menninguna. En oft finnur maður til sektarkenndar fyrir hönd okkar í hinum vestræna heima fyrir bruðlið í okkur. Jörðin okkar kemur aldrei til með að geta staðið undir samskonar neyslu í þessum fátæku löndum í framtíðinni sem við höfum leyft okkur. En það er vonandi að hin efnislegu gildi lúti fyrir öðrum æðri gildum í framtíðinni. Meðvitund mannkynsins er að breytast en það getur tekið tíma.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta var góð hugvekja sem þu sendir i dag, Guðmundur minn. Í fyrsta sinn á netinu að læra á það,- kveðja tóta og óli

Nafnlaus sagði...

Þetta er ómetanleg lífsreynsla sem þú ert að ganga í gegnum þarna í allt öðru lífi en því sem við eigum að venjast. Hér er búið að fara í sund í morgun, taka til og skúra og Elísa er nú farin í Húsdýragarðinn með JÖ, SH og ED. Hlynur var að vakna eftir væran blund í vagninum og er hinn kátasti. Kveðja úr Geislanum.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn í dag elsku mamma og pabbi!

Nafnlaus sagði...

Heisan Gudmundur, hverdagslivet er likevel forskjellig. Du ser først dybden når du får det i perspektiv. Jeg kjenner igjen noen av bildene. NRK sendte en dokumentar om Darfur for noen dager siden, fra BBC. Et sterkt program som forteller noe om hverdagen med en ufattelig vold som er uforståelig. Som hjelpearbeidere ser vi ikke det direkte, men arbeider med virkningene. Et viktig arbeid. Lykke til! Hilsen Ståle.