þriðjudagur, maí 02, 2006

Það vorar líka í Sudan

Frídagur hjá ykkur á Íslandi í gær en ekki hjá okkur. Full vinna. Maður kvartar ekki þótt tekinn sé af manni frídagur. Sudan hefur líka marga helgidaga og opinbera frídaga sem við höfum ekki heima, en fáum að njóta góðs af. Fór á markaðinn á sunnudag með þremur öðrum. Mubarak, mín hægri hönd og góður vinur, var leiðsögumaður okkar. Ansi skemmtilegt, hef aldrei skoðað markaðinn hér í Nyala svona rækilega. Dunduðum okkur í næstum 2 tíma enda svæðið stórt. Keypti mér forláta kopp í krómuðu stáli. Kostaði 500 kall og fór beint undir rúmið að venju forfeðra okkar. Það var 30 stiga hiti kl 8 í gærmorgun, fór upp í 40 gráður í skugganum. Hitinn er óbærilegur á skrifstofunni og í herberginu. Maður vaknar á sundi á morgnana og gufustrókurinn stendur af manni á daginn. Það er varla að maður pissi, það mesta af vatninu fer út um húðina. Drakk 6-7 lítra af vatni í gær. Það er sem sagt komið vor og sumarið á næsta leiti. Fór að heimsækja Lemi, einn af okkar sudönsku starfsbræðrum sem fékk botnlangakast á fimmtudag og var skorinn upp á laugardag. Munaði engu að hann springi í tætlur. Botnlanginn sem sagt. Færði honum Toblerone súkkulaði að gömlum sið íslendinga. Þegar ég kom heim í gær, uppgötvaði ég, mér til mikillar gleði, að uppsetningin á loftkælingunni var hafinn. Búið var að gera stórt gat á vegginn. Herbergið var fullt af ryki. Vonast til að þetta klárist í dag svo að maður geti farið að sofa almennilega, í svölu lofti. Gönguhópurinn er orðin ansi virkur. Förum í göngutúra um götur Nyala nánast á hverju kvöldi. Fórum í göngutúr í klukkutíma í gær. Gengum fram á Háskóla Nyala og fengum leyfi til að fara inn á háskólasvæðið, vorum leidd um allt og sýnt. Það var gaman. Ný hlið á Nyala. Fullt af ungu fólki, að lesa, skrifa og skrafa saman, á bókasafninu, í tölvusölunum og út um alla lóð. Vantar ábyggilega kennara. Er einhver sem vill sækja um? Ætla að skoða svæðið betur seinna og fá leyfi til að taka myndir. Klukkan er núna 09:30 að sudönskum tíma. Best að reyna að nota morgunin á meðan hitinn er undir 35 stigum. Búinn að drekka 2 lítra þegar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við erum komin heim frá Slóveníu, lentum um 3-leytið í nótt eftir ákaflega vel heppnaða ferð. Fór á markað í Ljubljana en keypti bara jarðaber, engan kopp. ;-)