þriðjudagur, júní 13, 2006

Ásaþór sveiflar hamrinum Mjölni-Thor og hammeren Mjolnir



Það má með sanni segja að Þór hafi verið úrillur í gærkvöldi. Það gustaði kröftulega dágóða stund, greinilegt hver var á ferðinni um himinhvolfin í kerru sinni. Himininn logaði óslitið þegar hann sveiflaði hamrinum Mjölni. Það gerði slíkt úrhelli, að annað eins hef ég vart upplifað. Hvort hann hafi lent saman við konu sína Sif eða að reiði hans var sprottin af öðrum orsökum, hef ég ekki fengið fregnir um, en hann var allavega mestan hluta næturinnar að róa sig.
Það pípti inn vatn í gegn um gluggahlerana í herbergi mínu, en einhver bráðsnjall hafði borað göt í gluggakarminn á ská út, þannig að allt vatn rann jafnóðum út. Herbergið mitt var semsagt þurrt í morgun. Wilfred vinur minn, var ekki eins heppinn. Í hans gluggakistu voru engin göt. Þannig að hann skellti sér í sundskýlu, og synti fram á gang, sem var eiginlega jafnblautur. Getum kallað það grunnu laugina. Þakið er lekt í eldhúsi og stofu, þannig að pollar voru á gólfi. Skrifstofan mín hafði sloppið að mestu, smá raki á tvö til þrjú blöð. Skrifstofustjórinn brást skjótt við og tók skýrslu frá íbúum allra húsanna, og úrbætur eru þegar hafnar. Það á eftir að koma annað eins veður aftur.
Það er annars það að frétta að fjármálastjóri Khartoum kom í heimsókn til Nyala og var hér í tvo daga. Hann er mikill göngu garpur, og bar þar vel í veiði. Fengum okkur langa göngutúra, skoðuðum lífið í útkanti Nyala, settumst niður af og til og spjölluðum við fólk. Annars eru túrar mínir farnir að vekja athygli, þar sem ég yfirfæri gönguleiðirnar frá GPS tækinu mínu yfir á tölvuna, prenta þær út og hengi upp á vegg. Gönguhópurinn á eftir að stækka á næstunni.

Til mine norsktalende venner. Thor gikk berserk i gårkveld. Himmelen sto i flammer og det regnet meget kraftig. Fleste rommene i det orange hus, hvor jeg bor, var relativt tørre etter natten. Wilfred var den eneste som måtte ta på seg badebuksa og svømme ut av rommet. Administrasjonen på kontoret reagerte straks, gikk på befaring og har allerede sørget for forbedringer. Dette er hittil det kraftigste regnskyllet som jeg har erfart.

Har vært mye på turer i det siste. De begynner å vekke oppmerksomhet. Har til og med skrevet ut mine ruter fra GPS utstyret mitt og hengt opp på veggen på kontoret mitt. Tur gruppen blir etterhvert større. Mange begynner å bli interessert.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er ekki að spyrja að þessum tækjaglaða... ;-)
Aldeilis veður sem þið hafið fengið.
Hér skín sól en hitamælirinn sagði mér að það hefði verið -0,7° í nótt, e-m nokkrum gráðum heitara núna. Að sjálfsögðu ekki hægt að hafa bæði hita og sól hér i höfuðborg Íslands en maður er þó þakklátur fyrir sólina.

Gudmundur Bardarson sagði...

Unnur mín, viltu vera svo væn að hirða nokkrar gráður frá mér? Tek gjarna við nokkrum mínusum í staðinn. Mörgu er misskipt í þessari veröld. Það er annað hvort í ökla eða eyra.
Bið að heilsa,
Einn býsna volgur þessa dagana svo ekki sé vægara til orða tekið

Nafnlaus sagði...

Vá, aldeilis læti í thrumugudinum. Svo ég tali um vedur líka tha er verulega heitt í Osló á okkar mælikvarda svo lá vid thropenatt í gær; 19 gradur er ég kom heim úr minni vinnu udnir midnættid. Fólk farid ad bada sig í sjónum einsog vera ber. Astar- og saknadar.

Nafnlaus sagði...

Sæll félagi Guðmundur.
Núna er ég kominn í sumarfrí til 28. ágúst.Þá notar maður tíman til að ferðast um ísland, ég ferðast ávallt með farastjóra og svona 50 ferðafélaga með mér. Stórtækur.
Nei ég er rútubílstjóri, það er fín tilbreyting gaman að hitta börnin og barnabörnin ykkar í vor þegar ég skrapp eina ferð. Þið megið vera stolt að árangrinum.
Það er gaman að fylgjast með þér þarna á hinum hjaranum, þú getur haft nóg að gera við að halda fyrirlestra um dvölina þína þarna þegar henni líkur.T.d hjá Kiwanis.
Gangi þér svo allt í haginn kæri vin.
Kveðja Benni Brunó.

Nafnlaus sagði...

Sæll Guðmundur.

Ég hitti Unni á þjóðhátiðardaginn og hún sagði mér að þú værir á framandi stlóðum.
Það er alveg frábært að þú skulir vera óhræddur að skifta um starfsvetvang í framandi landi.

Kær kveðja
Gummi Magg

Nafnlaus sagði...

Jæja pabbi, er ekki kominn tími á nýja færslu? 2 vikur síðan síðast. En annars langaði mig að minnast á það að það eru einungis 11 dagar þangað til við verðum á leiðinni í villuna í Toscana og svo er akkúrat mánuður í dag þangað til við Elísa komum til ykkar ömmu í Korpåsen. Spennandi mánuður framundan... :-D

Nafnlaus sagði...

Við náðum að vera samtals 51 sem borðuðum saman og vorum í leikjum á laugardagskvöldi fjölskyldumótsins í Svarfaðardal. Einungis 4 sem ekki gátu komið: Andri Fannar, Klara og Hugrún B. og þú. Ykkar að sjálfsögðu saknað á frábærlega vel heppnuðu móti! Myndir munu berast síðar. Heyrumst!

Nafnlaus sagði...

Var að vafra um síðuna þína í leit að nýjum bitastæðum fréttum. Núna er ég í grasekkjuleik á Kirkjustétt. Jóhann Ölvir er í veiðivötnum Eiður Darri og Hlín mín eru hinsvegar í sveitaferð með ömmu sinni og afa. Ég er þó ekki alveg ein þar sem ég knúsa hér og dekra við einn hóstandi Hlyn. Fyrir utan hóstan er hann frískur og frakkur að vanda. Jóhann kemur heim annað kvöld...vonandi með einhvern afla. Hlökkum til að sjá þig í Norge eftir rúman mánuð. Kveðja:
Kristín Margrét og Hlynur Kári.

Nafnlaus sagði...

Jæja.... við bíðum spennt eftir ferðafréttum...

Nafnlaus sagði...

Fgj v kzm p hot sex movies, hot xxx movies. Azs q, ldi fxeugn|njr fulwkyo v yp cw.