sunnudagur, september 17, 2006

Er þetta lognið fyrir stormin?

Við sátum heima í morgun eins og ákveðið var. En það var rólegt yfir Nýala í dag. Fórum á skrifstofuna eftir hádegi. Það ríkir enn óvissa um morgundaginn. Fáum að vita í kvöld hvað aðrir gera. Darfur dagurinn er í dag, eins og hann er kallaður og stuðningur við íbúa Darfur látinn í ljós um víða veröld. Páfinn vakti líka athygli múslima þessa dagana eins og flestir vita. Þrýstingur á súdan eykst með degi hverjum. Margir álíta þetta sé aðeins lognið fyrir storminn. Vona að skynsemin beri sigur úr býtum og fólk hafi stjórn á tilfinningum sínum.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll afi minn! Amma er að passa mig í dag vegna þss að ég var með hita í gær. Hún heldur að ég sé að taka jaxl. Annars er ég bara brattur í dag og borðaði fullt af hafragraut þegar hún kom kl. rúml. átta. Þá voru hún og mamma búnar að fara í Hreyfingu og eru rosa hressar og grobbnar með það. Nú þarf ég að fara að taka smá til hér í húsinu svo ég verð að hætta. Gangi þér vel afi minn, ég er mjög stoltur af þér. Þinn dóttursonur Hlynur Örn.

Nafnlaus sagði...

Hei Gudmundur

Takk for sist. Det begynner å bli noen måneder siden. Følger bloggen din med stor interesse, selv om jeg ikke har vært flink til å legge inn kommentarer. Ser at situasjonen hos dere er spent - ta vare på dere selv. Retrospektivt ser jeg at månedene i Sudan var en vekker meg, både i forhold til forståelse for en fremmed kultur, og i forhold til u-hjelpspolitikk.

Håper situasjonen hos dere roer seg slik at NGOène får bedre (ikke minst tryggere) arbeidsforhold.

Hils Philip, Suwanna, Sidsel og andre kjente.

Nafnlaus sagði...

Sæll Gummi.

Ég hefði kíkt á þig um daginn þegar ég átti leið um en samferðafólk mitt tók fremur treglega í það.Enda vorum við um 550 saman á leið frá Jóhannesaborg til London.En ég kem bara við síðar þar sem það kemst trúlega uppí vana að fara til Afríku.
En endilega farðu bara varleg,afríkubúar hafa greinilega ekki alveg sama húmor og við.

Kær kveðja
Gummi Magg

Nafnlaus sagði...

Það er alla vega logn hér á síðunmi þinni ........... 12 dagar frá síðasta bloggi! Hvernig er málum háttað núna .... vinnufriður eða áframhaldandi spenna sem heldur ykkur heima? Engar gönguferðir síðan þú lentir í steininum? Er regntímabilinu lokið? Hvernig gengur grænmetis- og kryddræktunin? Sendu endilega myndir. Ástarkveðja, Hugrún
PS Hlynur Kári sendir afa líka ástarkveðju. Hann er mjög hrifinn af rauðum bolta og dregur sig áfram á gólfinu á eftir honum :)