Það er ekki öll vitleysan eins, stendur einhvers staðar. Í gærmorgun, fimmtudag var hringt í yfirmann okkar og honum tilkynnt að við þrjú sem handtekin vorum fyrir viku síðan, ættum að koma fyrir rétt strax. Einhvern veginn hafði hann á tilfinningunni að þeir væru hissa á að við hefðum ekki mætt þá þegar. Hann fór strax á lögreglustöðina til að kanna málið án þess að nokkur botn kæmist í það. Jennifer sem var ein af okkur þremur, er farin til Englands þar sem samningi hennar er lokið. Þeir fóru fram á að hún kæmi til baka innan tveggja daga til að vera við "réttarhöldin". Sam sem hefur tekið þessu frekar þungt sem skeði fyrir viku síðan, veit ekki enn um þennan nýja leik yfirvalda. Ef þetta fjarar út, er ekki nauðsynlegt að hræða hann að óþörfu. Þegar ég frétti þetta brá mér óneitanlega dálítið í brún. Núna fær maður persónulega að kynnast dutlungum slíkra stjórnvalda eins og hér eru. Það var strax haft samband við lögfræðing okkar sem staddur er i Khartoum. Þetta er að sjálfsögðu furðulegt mál allt saman. Fyrir okkur var málinu lokið og okkur afhent allir okkar hlutir það kvöldið sem þeir höfðu verið teknir. Það vakti furðu mína að ekkert okkar var beðið um skilríki kvöldið fræga. Allt ferlið í yfirheyrslum og meðhöndlun málsins virtist afar tilviljanakennd.
Það getur orði spennandi að fylgjast með framþróun málsins. Við vitum öll að margar mikilvægar ákvarðanir eru hugdettur og dutlungar ákveðinna manna, og geta orðið ansi útreiknanlegar. Ég kem til með að lýsa þessum farsa næstu daga, svo framarlega sem mér verði ekki stungið inn.
föstudagur, september 08, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
ja hérna hér.. kominn 11.sept og ekkert skrifar Guðmundur.. þessi lokasetning er ekki mjög upplífgandi! Vonum það besta og gangi þér vel við að breyta þessum dutlungafullu mönnum til betri vegar. Heimur batnandi fer.
Sæll gamli.
Ertu nokkuðað koma þér vandræði þarna, ég er búin að bjóðast oft til þess að vera þarna þér innan handar svo allt gangi vel. Það er gott að múta með vatni þarna t.d.
Annars allt gott að frétta héðan af skerinu ég var að eignast 6. barnabarnið Magni í Ameríku og Benni í Borgarnesi 3. á mann. og Heiðar stjórnar tölvunum í Iðnskólanum. Sótti um vinnu í fyrirtækinu hjá Unni þinni en þeir gleymdu að láta heyra í sér svo hann fór aftur í Iðnskólan.Þú þarft að fara að komaþér á framfæri í ísl. fjölmiðkum þú hefur frá svo miklu að segja kæri vin.
Kveðjur frá okkur Hugrúnu.
Jæja pabbi minn, hvað er nú að frétta? Er ekki kominn tími á að við fáum að heyra frá þér aftur. Frétti að þú værir farinn til Khartoum á einhvern sendinefndafund. Njóttu verunnar þar. Kveðja frá Fróni.
Skrifa ummæli