
Þegar ég var lítill, eins og maður sér sjálfan sig undir 12 ára aldri, var lögguleikur og bófahasar algeng skemmtun hjá okkur strákunum. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar löggan í Nýala fór í lögguleik og tók okkur njósnarana fasta. Leyniþjónustan og Þjóðaröryggið nenntu ekki að vera með í leiknum. Þegar við héldum að nú væri 'Geim Over', vildi löggan endilega halda leiknum áfram. Nú átti að draga okkur fyrir dómarann. Ég skildi nú vesalings mennina ósköp vel. Það er ekki svo mikið spennandi sem skeður á löggustöðinni í Nýala. Þeir sem sátu inni með okkur voru aðallega smáþjófar sem ekkert púður er í að handtaka. En leiknum er nú að ljúka að ég held. Menn frá æðri stöðum hafa kvartað yfir látum í strákunum, og beðið þá að snúa sér að einhverju gáfulegra, ef það þá finnst.
Ég er núna staddur í Khartúm á leiðinni á Stjórnarfund Dero áætlunarinnar. Verð hér fram á föstudag og flýg þá tilbaka til Nyala. Verð kominn með fulla áhöfn í minni deild í vikunni. Núna á að ráðast í margt og spennandi.
Þakka öllum fyrir góðar kveðjur, alltaf gaman að fá "Comment" á bloggið. Ef einhver gæti hugsað sér að koma til Darfur og vera í ca 6 mánuði, ekki til að vera með í "bófahasar" eða "lögguleik", heldur til að leggja eitthvað að mörkum hér og öðlast dýrmæta reynslu. Mér skilst að það vanti t.d. þúsundþjalasmiði eins og Benna Brunó og Gunnar Pál. Hugsið málið strákar. Heyrumst
1 ummæli:
Það er gott að þessum "löggu og bófa" leik er að ljúka. Þvílík hringavitleysa. En eins og þú sagðir þá er kannski ekki margt spennandi sem gerist á löggustöðinni og um að gera að gera sér mat úr því sem býðst. ;-)
Við erum annars að fá mömmu/ömmu til okkar í dag og erum voða spennt að hitta hana.
Kveðja frá okkur öllum.
Skrifa ummæli