
Já, tíminn líður óðfluga. Allt í einu er orðin mánuður síðan að ég skrifaði blogg síðast. Suma er farið að lengja eftir fréttum. Það er ágætt ef einhver ýtir við manni þegar bilið milli frétta verður of langt.
Það hefur svo sem ekki verið neinir stórviðburðir upp á síðkastið. Ég hef að öllu leyti verið utan fangelsismúrana síðan myndakvöldið mikla. Það er stíft prógramm þessa dagana, verið að berja saman áætlun næsta árs. Mikill tími fer í vinnu og frítíminn fer í lestur og hvíld aðallega. Gáfum okkur tíma til að skreppa í piknikk einn auka frídag sem við fengum. Við fundum fallegan trjálund og eyddum nokkrum tímum saman yfir matarkörfum, alls 20 manns.
Skrapp til Khartoum 10. október, til viðtals út af nýju starfi sem mér stóð til boða, einnig til að kynna mér nýtt Navision launakerfi sem við erum að setja upp hér í Sudan. Hvað starfið varðar, fékk ég tilkynningu stuttu síðar, um að ég hefði verið valinn sem einn af þremur í teymi sem fékk hið ágæta nafn, ‘Emergency Core Group’. Okkar starf verður að þróa kerfispakka á sviði fjármála-, birgða- og aðfangastjórnunar, sem hægt verður að nota strax á væntanlegum hörmungarsvæðum, þar sem skyndihjálpar er þörf. Samkvæmt tölfræðinni, verða hörmungar á einum eða fleiri stöðum í veröldinni á hverju ári. Teymið getur þess vegna verið kallað út með 24 tíma fyrirvara til að fara til einhvers lands þar sem hjálpar er þörf. Margar hörmungar gera ekki boð á undan sér. Að öllu jöfnu verður vinnustaður minn annars í Oslo.
Vera mín hér í Nyala er að styttast og líkur eru á að ég byrji í hinu nýja starfi í byrjun apríl. Í millitíðinni verð ég í Sudan en fer í tveggja vikna þjálfun í Oslo tvær vikur í lok janúar 2007. Einnig er á áætluninni að taka út vaxtahraða barnabarna á Íslandi, fyrstu vikuna í febrúar og hitta aðra vandamenn og vini. Sennilega verður tíminn naumur, aðeins ein vika eða svo í það skiptið.
Að öllu forfallalausu fer ég til Kenya 22. nóvember, hitti þar Hugrúnu og Gunnar Pál mág minn, ásamt Önnu Láru konu hans í Narobi. Tilgangur ferðarinnar er m.a. að rannsaka dýralíf Kenya, enda líffræðingur um borð, og upplifa menningu landsins og ýmsa staði í landinu.
Jóla og áramót verða sem sagt haldin í Nýala enda engar ferðir heim fyrr en á næsta ári eins og áður er getið.
Ég læt allavega heyra frá mér eftir safari ferðina.
4 ummæli:
Takk fyrir pistilinn sem okkur fannst orðinn löngu tímabær!! Við sitjum í eldhúsinu í Skógum í dögun nýbúin að borða hafragrautinn. Eiður Darri stjórnar fótaferðatíma og er nú í full starfi við raðmyndirnar sínar. Tóta stúderar nýju tölvuna sem kom í hús fyrir fáeinum dögum og tengdist við vefinn í gær. Óli kemur fram, Hugrún pikkar og Lovísa sefur enn á sinu græna eyra. Allt í eðlilegum gír sem sagt á fallegum vetrardegi úti við nyrsta haf. Hlökkum til að heyra fljótt frá þér aftur. Tóta, Óli, ED, Hugrún og Lovísa.
Gaman að heyra frá þér Guðmundur :) og til hamingju með nýtt starf ...þú ert alltaf að fást við spennandi hluti.
Hér er lífið að færast í "eðlilegt" horf...komin rútína á börnin og allt mun léttara. Ég hrekk nú samt við í hvert skipti sem vindkviðurnar skella á húsinu! Fyrsti vetrarstormurinn er genginn yfir...og ég held að annar sé á leiðinni!
Það eru mikil ferðalög á mér...ég fer til Oslóar 2 sinnum í mánuði og er 5 daga í senn. Er farin að hlakka til að fá litlu íbúðina mína á Röa....í uke7!!!
Nonni hefur nóg að gera í kennslunni og er líka að fara að spila á tónleikum um helgina. Hann "elskar" Ísland...;)
Verðum í bandi...:) Gigja
.... það var og, flökkudýrið komið af stað aftur :-) Til hamingju með nýja starfið, þetta er klárlega eitthvað fyrir þig.
Vonandi fáum við að sjá þig hérna á klakanum áður en lang um líður.
Meira síðar. Kv/FA
Ég hef aðeins fylgst með bloggsíðunni þinni, Guðmundur og þeim áhugaverðu og spennandi viðfangsefnum sem jafnan fylgja þér. Hugrún kom hér í haust og þá með varð myndin af störfum þínum skýrari fyrir mér. Við óskum þér og öllum þínum gleðilegra jóla og farsældar í nýju starfi (og lífi) á nýju ári með þökk fyrir hið liðna.
Þorvaldur og Sigga
Skrifa ummæli