
Það er orðið býsna langt síðan að rituð voru orð i þennan blogg. Síðast þegar fréttir voru skrifaðar, voru áramót í nánd. Hugrún og ég vorum send fra Nyala til Khartoum um jólin af öryggisástæðum. Ekki var beint hætta á ferðum, en stjórnendum ýmissa stofnanna í Darfur þótti ráðlegra að hafa ekki fleiri en nauðsynlegt var um jólin, ef til brottflutnings skyldi koma. Nú, þar sem ég var hvort eð er á leið til Noregs í byrjun janúar til að taka þátt í þjálfun vegna nýs starfs hjá hjálparstofnunni, sá ég enga ástæðu til þess að hanga í Khartoum. Ákveðið var að reyna að skella sér heim til Noregs fyrir áramót, eða einni viku fyrr en áætlað var. Það var reyndar á valdi yfirvalda hvort það tækist. Það þurfti því að setja allt á fullt við að útvega mér fararleyfi í tæka tíð. Daginn fyrir brottför var búið að skreyta vegabréf mitt með stimplum og miðum sem áttu að gera mér kleyft að yfirgefa Sútan og einnig að fá að koma aftur. Laugardaginn 30. desember, kl 01:50 hófst Lufthansa vélin á loft. Við millilentum í Frankfurt og vorum komin heim í Korpásinn um hádegi. Eyddum áramótunum þar í rólegheitum. Hélt síðan mínu vinnutempói fyrstu vikuna þar sem ég var ekki í neinu fríi. Var m.a. tvo daga á skrifstofu KN.
Laugardaginn 6. janúar var förinni heitið til Íslands. Stoppuðum þar í eina viku í faðmi fjölskyldu okkar. Að því loknu hófst þjálfun og námskeið í Oslo sem stóð í tvær vikur. Þann 29. janúar á mánudagsmorgni, hélt ég til baka til Sudan eftir að hafa verið í burtu frá Darfur í 5 vikur. Það var býsna mikið sem beið eftir manni af vinnu. Er núna búin að hafa 2 vikur til að minnka búnkann, enda áramótauppgjör á fullu.
Ástandið í Darfur er búið að vera ansi óútreiknalegt. Töluvert hefur verið um væringar í Darfur og í kring um Nyala, en ekki neitt stórvægilegt í sjálfum bænum. Nýala er ansi vel gætt, enda mikilvægur flugvöllur í borginni. Það er búið að vera útgöngubann í gildi frá kl. 9 á kvöldin, sem sett er af Sameinuðu þjóðunum. Við höfum fylgt því. Okkur er heldur ekki leyft að ganga alein á götum úti eftir kl 7 á kvöldin. Annars líða dagarnir hratt, með mikilli vinnu. Ég flutti í nýtt húsnæði af praktískum ástæðum fyrir stofnunina. Húsnæðið sem er nær skrifstofunni er í góðu standi og við verðum aðeins tveir sem búum undir sama þaki, með sitthvort herbergið og sameiginlegt eldhús og setustofu. Hef reyndar haft húsnæðið út af fyrir mig í eina viku. Ken, sem sér um öryggismál, kemur í þessari viku. Einnig er ég þessa stundina að vinna í því að Hugrún fái að koma til Nyala, til starfa í tvo mánuði. Vonast til að fá svar við því um næstu helgi. Læt heyra í mér bráðlega aftur. Er með góða nettengingu á herberginu mínu, þannig að auðveldara ætti að vera að skrifa nokkrar línur á kvöldin. Lifið heil
1 ummæli:
Sæll Gamli.
Gott að lesa bloggið þitt þá veit maður að þú ert ekki allur.
Vorum á Florída um jólin með Magna.
Var að koma frá Bretlandi var þar á námskeiði í nýrri slökkvitækni.
Á mánudaginn verður fyrsti skóladagurinn hjá okkur í nýja Slökkviliðsskólanum sem er á Keflavíkurflugvelli en þar fengum við húsnæði fyrir skólann í húsnæði sem herinn var með áður.
Heiðar Örn er að fara vinna hjá Einari J. Skúlasyni verður staðsettur á Reyðarfirði í nýja álverinu hann á að sjá um tölvukerfið í nýja álverinu, það er að segja skrifstofudeildinni.
Annars allt gott að frétta hér á klakanum. Til hamingju með nýja starfið og gangi þér vel kæri vin.
Benni Brunó
Skrifa ummæli