föstudagur, apríl 13, 2007

Lokaspretturinn i Sudan




Páskarnir eru yfirstaðnir. Það var ekki mikið frí að þessu sinni, aðeins einn dagur. Allt á fullu við að ljúka við verkefnin áður en maður yfirgefur Sudan. Þessir síðust tveir mánuðir eru búnir að vera ansi harðir, gefandi og spennandi. Vinnudagarnir hafa oft verið 12 tímar, en maður hefur reynt að fara ekki yfir það að jafnaði. Og vinnuvikan hefur alltaf verið 6 dagar þrátt fyrir að hún sé opinberlega 5 dagar.

Mestur tíminn hefur farið í að ljúka árinu 2006 og undirbúa stjórnarfund í London núna í næstu viku. Eftir það getur maður farið að byrja að pakka saman og rétta nýja fjármálastjóranum lyklana. Hugrún hefur ekki haft styttri daga, síður en svo. Sem aðstoðarkona og ritari forstjórans hafa dagarnir verið langir og krefjandi. Hennar framlag hefur forstjórinn kunnað að meta. Forstjórinn, Anne, er að hætta störfum hér eftir 18 mánaða starf við stjórnvölinn. Það gengur því mikið á við að skila af sér. Það eru margir fleiri sem eru að hætta núna á næstu vikum. Það má segja að það verði skipt um blóð hér með mörgu nýju fólki með nýjum leiðtoga.

Þrátt fyrir mikla vinnu, tókst okkur að fara tvisvar í heilmikla könnunarferð um Nyala um daginn. I fyrra skiptið fórum við 4 saman, og gengum í einn og hálfan tíma langan hring, lengsta göngutúr sem ég hef farið síðan ég var settur inn í september. Tveim dögum síðar fór 9 manna hópur í tveggja tíma göngu, með pásu á lokal tebar á einum af mörkuðunum hér í Nýala. Vöktum við að vonum mikla athygli enda hvítingjar fáséðir um þær slóðir sem við gengum. I mínum augum,er það næsta undarlegt að fólk frá hjálparstofnunum skuli ekki ganga meira um og sýna sig og sjá aðra. Það ekur mest um í bílum og virðist lítin áhuga hafa á umhverfi sínu. Þetta er að sjálfsögðu ekki algilt, en algengt. Þannig kynnist samfélagið okkur lítið. Hitt er að okkur eru settar skorður í hreyfanleika af öryggisástæðum. Í seinni göngutúrnum var okkur skipað að hafa einn Súdanskan samstarfsmann með okkur sem túlk ef eitthvað kæmi upp og þar með gæta öryggis okkar. Við vorum 4 sem höfðum með okkur talstöðvar. Stundum hef ég á tilfinningunni að of mikið sé gert úr hættunni, en fer samt alltaf eftir fyrirmælum sem mér eru sett.
Heitasti tíminn fer í hönd núna. Hitinn hefur farið í yfir 40 gráður um miðjan dag. Þessa stundina er hret, hitastigið var 20 gráður kl 7 í morgun og ansi þægilegt um hádegið. En hitinn kemur til með að skella yfir aftur. Í Khartoum getur hitinn farið yfir 50 gráður. Þá er nauðsynlegt að hafa góðar loftkælingar.
Veran hér í Sudan er búin að vera eitt besta ævintýri sem maður hefur upplifað á ferli sínum og margt nýtt maður hefur andað sér sem hefur gefið manni betri skilning á veröldinni við lifum í.
Við smellum inn línu áður en við förum frá Sudan. Stoppum einn og hálfan dag í Khartoum áður en flogið verður heim á leið kl. 01:50 aðfararnótt 24. apríl.

Engin ummæli: