laugardagur, febrúar 04, 2006

Allt með kyrrum kjörum í Nyala-Stille i Nyala

Það er laugardagsmorgun í Nyala. Sólin skín eins og vanalega, hér er aldrei skýjað. Hitinn var 36 stig í gær og verður sennilega nákvæmlega sá sami í dag. Sem betur fer er enn vetur. 'i vor fer hitinn upp í 50 stig.

Við verðum í hýbýlum okkar í dag líka. Látum hlutina róa sig alveg niður. Við njótum þess að vera heima við öll 5 og eldum góðan mat, liggjum á netinu, lesum og vinnum. Það er aðeins ein símalína út þannig að það er slagur um hana. Kenndi fólki að setja upp blogg sem gerði línuna enn uppteknari en áður.

Ég verð að segja að eitthvað jákvætt hefur komið út úr öllum þessum látum. Hef á tilfinningunni að þetta hafi orðið enn einn liðurinn í átt að gagnkvæmri virðingu og skilningu á milli mismunandi menningarheima, trúarbragða og tilfinninga fólks. Fékk rafpóst frá mínum samtökum í morgun sem inniheldur mjög jákvæð viðbrögð að mínum dómi. Sendi afrit til Hugrúnar, vill ekki tíunda innihaldið hér.

Var fyrstur framúr í morgun kl. 09:30. Notaði tækifærið, línan laus og þögn í húsinu. Við heyrumst.

Det er lørdagsmorgen i nyala. Sola skinner som vanlig. Her er det nesten aldri overskyet. Temparaturen var 36 grader i går. Heldigvis er det fortsatt vinter med litt kjøligere netter. I vår kan det bli 50 grader i skyggen. Vi er hjemme i dag, vi lar tingen roe seg ned og tar ingen sjanser. Vi er 5 som bor sammen. Vi nyter disse uventede 2 sammenhengende fridager, lager god mat, leser, surfer på nettet og jobber. Alle har sine laptopper. Vi har kun en telefonline her hjemme så det blir litt kamp om å dele den rettferdig. Viste mine samboere hvordan man lager en blogg som gjorde linjen enda mer opptatt en tidligere.

Jeg må bare si at jeg synes at en del positivt har kommet ut av alt dette bråket med tegningene. Jeg er sikker på at det har bidratt til gjensidig forståelse og respekt for mangfoldigheten i kultur, relegion og følelser ikke minst. Fikk e post fra min organisasjon i morges som viser akkurat dette. Vi holder kontakten.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að fá fréttir frá þér svona strax í morgunsárið; byrjað á að kíkja inn fyrir morgunsopann :) Hér er allt í fullu fjöri, nú kl. 13 þergar þetta er skrifað er verið að leggja ED (sem heldur upp mótmælum), SH er komin heim aftur eftir balletttímann og allir búnir að sporðrenna grjónagrautnum með lifrapylsunni. Reyndar eru Kristín og sá stysti ekki komin fram; áttu erilsama nótt. Heyrumst vonandi síðar í dag.

Nafnlaus sagði...

Sæll Guðmundur
Gaman að heyra frá þér :)
Já, þetta eru nú meiri lætin...út af þessum teikningum...!!!
...kannski eins gott að maður er Íslendingur!
Vonandi verður ekki meira úr þessu.
Takk fyrir allar myndirnar...skemmtilegt :)
Allt gott af okkur...kalt og nú snjóar...vorum að koma inn úr kuldanum. Er ein með krakkana...Nonni í menningarferð og að leita sér að vinnu á Íslandi!!!
Kveðja Gígja

Nafnlaus sagði...

Já, það er gott að fá fréttir af daglegu lífi hjá þér sem er samt svo ólíkt okkar amstri hér heima á klakanum.
Elísa Rún búin að fara í fimleika í morgun, Hlynur Örn í stuði, skríður út um allt og fiktar í öllum snúrum og tökkum. Farinn að standa upp uppvið allt og tætusviðið því orðið ansi stórt. Andri Fannar hjá okkur um helgina og við erum nú á leiðinni í bæinn að spóka okkur. Kveðja úr Geislanum.