fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Dramatíkin er einkennileg tík

Yfirvöld drógu tilbaka tilmælin um brottflutning. Það eru greinilega miklir hagsmunir í húfi fyrir samfélagið í Nyala. Það hafa allavega 300 innfæddir vinnu hjá NCR. Ef starfsemin leggst niður, hefur það alvarlegar afleiðingar fyrir samfélagið. Giska á að peningalegir hagsmunir hafi einhverju ráðið um að taka ákörðunina til baka. En allavega, flestir verða komnir til Khartoum á morgun af alþjóðlega starfsliðinu. En allar líkur eru á því að við snúum til baka til Nyala þótt síðar verði. Það verður sem sagt alltaf að taka öllu með fyrirvara sem sagt er, oft erfitt að vera hlutlægur við þessar aðstæður. Dramatíkin er því oft ekki langt undan.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ja hérna, þetta er nú meiri sápan.
Gangið nú varlega á bökkum Nílar á morgun; njótið frídagsins!
Kveðja frá 6 meningunum á Kirkjustétt.