þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Erum allir orðnir nettengdir

Það kom fljótlega í ljós að hér er wlan (þráðlaus nettenging) þannig að nú er hægt að sitja nettengdur inni á hótelherbergi. Ég og Philip, nýi starfsmaðurinn minn, sérfræðingur í notkun á Navision, erum búnir að fá pláss á skrifstofunni til að vinna. Þannig að það verður sennilega nokkuð eðlileg vinnuaðstaða frá og með eftir hádegi í dag og þangað til við snúum til baka til Nyala. Verðum með í að ljúka bókhaldsárinu 2005. Einnig kjörið tækifæri til að skipuleggja ný vinnubrögð þar sem við í Nyala keyrum allt bókhald sjálf frá 2006.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alltaf gott að fá fréttir. Ævintýrið heldur áfram, og eins og í öðrum ævintýrum þá getur verið mikil dramatík en að lokum fer allt vel... :-)

Nafnlaus sagði...

Guuuð minn góður hvað gengur mikið á... en það er gott að þú getur sett kæruleysistakkann á. Frábært hvað þú ert jákvæður fyrir frekari breytingum í framtíðinni og UBG færir í 'ævintýrastíl'. Farðu varlega.

Nafnlaus sagði...

Sall Gudmundur.
Það er spennandi ad fylgjast med tér tarna, nú vari gott ad hafa slokkvibil til ad sprauta a tessa menn sem eru ad abbast upp a tig gangi ter allt i haginn Benni Bruno