þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Flóttamenn í Khartoum

Jæja, aftur komin til Khartoum, á flótta frá óörygginu í Nýala. Restin af okkur kom í gærkvöldi um sex leytið. Okkur er dreift í hús og á hótel, það sem finnst án mikils kostnaðar. Erum fjórir sem búum á ódýru en þrifalegu hóteli, tveir og tveir saman í herbergi. Hópurinn hittist í gærkvöldi á stærsta shopping center Khartoum, þar sem við skelltum okkur í billiard og bowling til að hressa upp á mannskapinn. Það er greinilegt að sumum hefur ekki staðið á sama og orðið hræddir, hræðslan jafnvel komið eftir á. Hef sjálfur reynt að gera lítið úr ástandinu en maður verður að passa sig á því vera ekki kærulaus og virða það ástandið er eldfimt. Maður stendur ekki lengi í miðjum bensín polli með logandi eldspítu, maður færir sig frá.

Veit ekki hve lengi ég kem til að vera á þessu hóteli, ekki víst að það sé laust. Fáum úrskurð seinna í dag. Reynum að vinna eitthvað með Laptoppana á hnjánum. Á þessu hóteli eru 4 tölvur fyrir hótelgesti, þar sem maður getur farið inn á netið og etv lesið póstinn sinn ofl. Sit núna við eina þeirra og skrifa þessi orð. Lær heyra frá mér.

Engin ummæli: