fimmtudagur, apríl 27, 2006

Komin aftur til Khartoum úr faðmi fjölskyldunnar

Já, það var góður tími heima í Korpasen og í Reykjavík. Allt tekur enda fyrr eða síðar. Khartoum heilsaði mér í gærkvöldi. Það var sem að ganga á vegg þegar maður steig út úr flugvélinni. Hitinn var 36 gráður og klukkan var orðin 7 að kvöldi. Var að fá ferðaleyfi til Darfur og tek fyrstu vél á morgun, föstudag.
Hafnaði beint í kveðjupartíi á gistihúsi NCA. Það eru 3 starfsmenn að kveðja fyrir fullt og allt. Búinn að upplifa það ansi oft þessa 3 mánuði að kveðja fólk sem maður hefur kynnst. Það hefur maður ekki upplifað á neinum vinnustað fyrr. En þetta er eðli þessa vettvangs, að flestir alþjóðlegra starfsmanna, staldra við í mesta lagi 6 mánuði. Ég er sem stendur einn af fáum sem hef svo langan samning, sem er 13 mánuðir.
Er búinn að vera mest allan daginn í dag hér í Khartoum að fara í gegn um e-póstinn minn og undirbúa mig fyrir verkefnin framundan. Það er frídagur á morgun. Fer því rólega af stað.
Fréttir herma að allt sé með kyrrum kjörum í Nyala.
Fjármáladeildin er núna fullmönnuð og uppbyggingastarfið er á fullu. Þið heyrið meira frá mér.

Landet i Khartoum kl 7 í gårkveld etter 12 timers reise fra Oslo. Det var som å møte vegg da jeg kom ut av flyet i 36 grader. Reiser til Nyala i morgen, fredag. Gleder meg til å starte igjen. Nå blir det full rulle i 3 måneder før neste break kommer. Dere hører fra meg.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Verðum saman í háloftunum í fyrramálið. Ég í flugi yfir Evrópu á leið til Slóveníu, þú yfir Afríku á leið til Nyala. Góða ferð!

Nafnlaus sagði...

Her er vorid afram a fleygiferd, og vid mjøg glød med 9 gradu hita i dag eftir haglelahrynur sidustu daga. Einsog tu serd er eg ekki buin ad finna isl. bokstafina a nyju tølvunni minni! Heyri fra ter a morgun fra Nyala. 1000 kossar.

Nafnlaus sagði...

Vorið kemur jafnvel hér á Tromsø. Snjórinn bráðnar hratt og gåseungene byrjaðir að laumast út úr brumknöppunum.

Góða ferð til Nyala!

Nafnlaus sagði...

Alltaf gaman að fylgjast með þér mási minn. Við Skógarsystur ætlum að hittast í Rvíkinni um helgina. UBG ekki heima og Guð má vita hvað við gerum á hennar heimaslóðum :)
Góða ferð minn kæri.