miðvikudagur, maí 10, 2006

Það rigndi í Nýala - Det regnet i Nyala


Fyrsti rigningin kom í nótt, ekki mikil en hún bleytti vel. Hvort friðurinn er kominn til að vera, er ekki gott að segja. Það er spáð meiri rigningu á laugardag skv BBC. Eins og sjá má á myndinni var býsna þungbúið í morgun.

Það er frekar mannfátt á vinnustað mínum, margir eru farnir og aðrir í leyfi. En það kemur maður í manns stað. Ég kem til með að keyra með fullri áhöfn um miðjan maí í minni deild.
Við eigum heilmikið verk framundan með uppsetningu á nýjum kerfum og halda rekstrinum gangandi.

Første regnet kom i natt. Det ble ikke mye men det ble i hvert fall vått. Det er meldt mer regn på lørdag ifg. BBC. Som vi kan se på bildet, var det ganske grått i morges.

Det er mange borte nå, mange reist for godt, andre på ferie. Jeg håper å ha fult mannskap i midten av måneden i min avdeling. Vi har mange oppgaver foran oss, med implementering av nye systemer og og holde driften gående.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessaður kæri mágur!
Náði ekki að heyra í þér meðan þú varst í fríinu. Fylgist með þér hér reglulega. Latur við að kvitta.
kv.Gunnar Páll

Nafnlaus sagði...

Hurra for deg som fyller ditt år .....!!!! Til hamingju með afmælið elsku Guðmundur!!! Allir hér í Korpaasen biðja kærlega að heilsa þér. Við heyrumst, hugsum öll til þín og söknum þín af heimilinu. Sjóðum lax í kvöld :)Hugrún og co

Nafnlaus sagði...

Blessaður Guðmundur.
Til hamingju með afmælið.
Gaman að fylgjast með þér þarna úti.Vona að allt gangi vel hjá þér. Allt gott að frétta úr Borgarfirðinum. Bestu kveðjur til ykkar beggja, Hugrún og Guðmundur.
Vilborg.

Nafnlaus sagði...

Fer að koma tími á nýja færslu frá þér. Annars var gaman að fá myndirnar, og sérstaklega með þeirri nýjung að hafa þær að þér! Ekki frá því að það séu nokkur kíló fokin ekki satt...
Nýjar myndir af okkur á salkahlin.com
kveðja,
Jóhann

Nafnlaus sagði...

Tek undir allt ofangreint hjá brósa. Hlakka til að heyra frá þér sem fyrst.
Kv. Björkin