
Ég fékk sendinguna mína að heiman í vikunni. Ég hafði fyllt kassa heima í Noregi, með bókum og öðru lesefni, ásamt lóðum, sem ég ætla að reyna að nota til að styrkja slappa vöðva.
Datt niður í bókina 'Human Dynamics' frá Master árunum mínum í kringum árið 2000. Rifjaði upp að ég er í þeim flokki fólks á vesturlöndum sem kallast Physical-Emotional. Af alls fimm flokkum eru aðeins 10% af vesturlandabúum í þessum flokki (55%-25%-10%-5%-5%). Ætla ekki að tíunda innihald þessarar bóka eða niðurstöður þeirra athuganna eða rannsókna sem hún fjallar um. Mæli hins vegar með henni fyrir þá sem hafa áhuga á að auka skilning sinn á mannlegum samskiptum og hvernig fólk vinnur úr upplýsingum á mismunandi hátt. Einn af eiginleikunum þeirra sem eru Physical Emotional, tjá sig sjaldan fyrr en þeim finnst þeir eitthvað hafa fram að færa.
Það er líklega ástæðan fyrir því að næstum tvær vikur eru síðan ég skrifaði pistil. Hér tala menn helst ekki um veðrið, það breytist næstum ekkert frá degi til dags. Það er ólíkt því sem gerist á Íslandi, með 3 til 4 veðrabrigði á einum degi. Svo eitthvað annað verður umræðuefnið að vera.
Hins vegar bar það til tíðinda, að himnarnir opnuðust og kærkomin rigning heltist yfir okkur í nótt. Það var svalt og notalegt að koma út í morgun. Sá drullupolla í fyrsta skipti hér í Súdan. Held samt að reyndum drullupollastöppurum eins og Sölku, Elísu og Eiði, hafi ekki þótt mikið til þeirra koma. Þeir eiga nú samt eftir að verða töluvert stærri þegar kemur fram í júlí.
Ég hef verið duglegur að ganga um hverfi Nyala. Það eru ótrúlega margar hliðar á þessum bæ og margt forvitnilegt að sjá. Alls staðar sem maður kemur, er eins og maður sé frá annarri plánetu. Íbúarnir eru ekki vanir að sjá svona skrítna menn eins og mig, ganga um hverfin þeirra. Ef maður stoppar, hópast börnin í kring um mann. Tek stundum myndir af krökkum á galdratækið mitt, Digital myndavélina, og sýni þeim útkomuna á eftir á litla displayinu. Þetta finnst þeim afar sniðugt og botna hvorki upp né niður í því hvernig töframaðurinn að vestan fór að þessu.
Fengum heimsókn sendinefndar frá Noregi í síðustu viku. Það lenti á mér að taka formlega á móti henni í fjarveru framkvæmdastjóra okkar. I heimsókn núna er einnig ráðgjafi sem er að taka púlsinn á starfseminni hér, einkum fjármáladeildinni, og setja saman hóp sem á að móta stefnu starfsins hér næstu tvö árin.
Það er margt nýtt starfsfólk að koma inn núna og margir að fara. Maður er farinn að venjast þessu þótt að það sé stundum krefjandi að byrja upp á nýtt með nýju fólki. Röðin kemur að lokum að mér, að kveðja og fara.
2 ummæli:
Skemmtilegur pistill hjá þér í dag, pabbi minn. HÖ fór aftur til dagmömmu í dag eftir tæplega 3 vikna frí. Ágætt að fá rútínuna aftur. ER sund- og hjóladrottning hlakkar mikið til að fá ömmu H í heimsókn eftir 14 daga. Hún er að hugsa um að biðja hana um að koma með meiri brunost, en samt "hinn sem er aðeins vondari af því að þessi er OF góður!" Hún er sko "sjúk í hann". :-D
Hafðu það gott í dag sem og aðra daga.
Las pistilinn í annað sinn í kvöld og tek undir það að þú hlýtur að vera þessi physkical emotional týpa .... frábær lesning og langt síðan þú opnaðir munninn síðast :) Svo datt mér í hug að spurja þig hvað þú meinar með "svalt" þarna í brennheitri eyðimörkinni? Hér er t.d. búinn að vera mjög heitur dagur og 14 stiga hiti kl. 10 í kvöld. Njóttu frídagsins á morgun!
Skrifa ummæli