Lífið gengur rólega fyrir sig hér í Nýala. Það er föstudagur og frídagur. Það er búið að ákveða að við fáum líka frí á laugardögum. Fram að þessu hefur föstudagurinn verið eini dagurinn sem við getum slappað af. Flestum hefur þótt það heldur lítið til að ná sér niður eftir langa vinnuviku. Vinnudagurinn er hjá flestum 10 til 12 tímar. Svo að þessi breyting er kærkomin.
Á mánudaginn er ferðinni heitið til Khartoum. Tilgangur ferðar minnar þangað er aðallega að mæta til atvinnuviðtals. Þar stendur til að ég hitti mann frá Oslo sem kemur til að taka viðtal við mig varðandi starf sem ég sótti um innan NCA. Það stendur til að setja saman teymi innan Emergency Group sem á að sjá um uppsetningu kerfa á svæðum þar sem hjálparstarf fer fram. Veit enn lítið um innihald þess en mótun starfsins verður sennilega að mestu í höndum teymisins sjálfs og getur orðið býsna spennandi. Það eru sjálfsagt fleiri umsækjendur, þannig að kálið er ekki sopið fyrr en í ausuna er komið. Ég tek með mér tvo starfsmenn mína sem ætla að taka þátt í þjálfun í launakerfi sem við ætlum að setja upp næstu daga. Ég nota ferðina og tek þátt í námskeiðinu eftir sem tími vinnst til.
Uppbygging fjármáladeildarinnar hér í Nyala gengur annars vel og er í stöðugri þróun. Hef fulla áhöfn til áramóta, eftir það getur farið að saxast á liðið. Þá eru ferlin orðin mótuð og við sem eftir verðum ættum að ráða við hin daglegu verkefni. Kem frá Khartoum á miðvikudag eða fimmtudag. Þið heyri frá mér þá.
föstudagur, október 06, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Sæll Gamli.
Ert þú komin í blogg bindindi?
Ekkert að frétta.
Eða ert kannski bara í fríi.
Það er allt gott að frétta héðan, vinnan slítur svolítið sundur daginn, annar er nóg að gera.
Heyrumst kveðja Benni Brunó
Jæja pabbi, nú er mánuður síðan þú skrifaðir síðast. Er ekki kominn tími á fréttir? Eftir annan mánuð verðið þið mamma í Kenya að skoða ljón og gíraffa. Spennandi! Er annars allt í rólegheitum og við það sama í Nyala? Engar handtökur? ;-)
Skrifa ummæli