þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Engin fjallganga um helgina-Ingen fjelltur i helgen




Svona fór um sjóferð þá. Mættum eldhressir á laugardagsmorguninn á skrifstofuna, þar sem við fjallgöngugarparnir ætluðum að hittast. Vorum varla fyrr komnir í startholurnar þegar vatnsfötur himinkvolfsins heltu úr sér. Við biðum átekta og það hægði aðeins á rigningunni en þegar við komum á áfangastað, jókst hún aftur. Við ákváðum þá að bíða fram á sunnudagsmorgun og gera aðra tilraun. Ókum um svæðið dágóða stund og ég tók nokkrar myndir af fjallinu og Juba með þokuslæðu yfir sér. Eftir þetta fór ég á skrifstofuna og sat þar sem eftir var dagsins við ýmis verkefni, í svölu loftinu eftir rigninguna. Þegar sunnudagurinn rann upp, og ég mættur í fullum herklæðum heima hjá félögum mínum, tilbúinn að takast á við þetta ögrandi verkefni, tók ekki betra við. Mina var hálfslappur og Peter hafði átt einhver óuppgerð mál við lögreglu staðarins. Þannig að ég fór á skrifstofuna með skottið á milli fótanna og sat þar nokkra tíma, las blöðin á netinu og dundaði mér við ýmis persónuleg verkefni.


Á mánudagsmorgun tók ég þátt í fundi sem alltaf er á mánudagsmorgnum, sem samanstendur af andakt í hálftíma með sálmasöng og upplýsingafundi á eftir. Á upplýsingafundinum var mér ráðlegt að reyna ekki að klífa fjallið, það er ekki útilokað að jarðsprengjur liggi hér og þar. Þar sem mér er býsna annt um lappirnar á mér ákvað ég að hlýða þessari áskorun. Mér hefur sem sagt ekki verið ætlað að klífa þetta fjall.


Læt tvær myndir fylgja frá laugardeginum, af fjallinu krýndu með þokuslæðu og yfir Juba.


Engin ummæli: