miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Tilveran í Khartoum

Það er allt komið á hvínandi fullt. Það kemur í ljós að það var ekki verra að ég er hér. Erum komnir í hvínandi uppgjör á 2005. Var eiginlega búinn að melda mig stikkfrí frá uppvaskinu þar sem búið var að gefa í skin að ég skyldi einbeita mér að nýju ári. Enn þetta er ágætt og bara gaman að þessu. Sendi þeim reikninginn fyrir vinnunni.

Förum á hverjum degi með leigubíl á skrifstofuna. Leigubílarnir eru svo slappir hér, að ef maður situr aftur í, getur maður átt von á því að framendinn á bílnum fari á undan afturendanum, og maður situr eftir á miðri götu. Það kostar hins vegar ekki mikið, ca 300 kall ísl.

Verðum að öllum líkindum fram í næstu viku hér í Khartoum þar sem ástandið hefur síst batnað í Darfur.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lásum pistlana hér á undan, gaman að fylgsjast með þég í framandi landi.
Hlóum að þessu með leigubílinn, hvenrig tegund er þetta?, ekki Mazda? ;)

Gudmundur Bardarson sagði...

Hef ekki hugmynd hvaða tegund. Sennilega gamall skoda. En við erum búinn að finna Muhammed leigubílstjóra eins og i Agadir forðum sem við getu hringt í, og sem gerir okkur hvert sem við viljum. Heyrumst